Yeoman ehf. óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulipran einstakling í starf verslunarstjóra í verslun sína að Laugavegi 7. Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður og jákvæður með góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund. Um fullt starf er að ræða á skapandi og fjölbreyttum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Daglegur rekstur verslunar - Sala og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini - Umsjón með netpöntunum og almennt utanumhald þeirra - Mannaforráð og dagleg starfsmannamál - Gerð vaktaplana - Útstillingar og önnur almenn verslunarstörf - Þátttaka í vöruinnkaupum með innkaupastjóra - Aðstoð við samfélagsmiðla
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af verslunarstjórnun eða sambærilegu starfi - Menntun sem nýtist í starfi - Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót - Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi - Umsækjendur þurfa að hafa náð 25 ára aldri. - Áhugi á tísku, vöruþekking og hæfni í útstillingum er mikill kostur - Frumkvæði, ábyrgðarkennd og stundvísi - Almenn tölvukunnátta, þekking á Shopify og samfélagsmiðlum er kostur
Yeoman ehf. rekur verslunina Yeoman á Laugavegi 7 í Reykjavík og netverslunina hilduryeoman.com. Yeoman framleiðir fatnað og aukahluti undir merkinu Hildur Yeoman en verslunin hefur skapað sér sess á íslenskum markaði sem áfangastaður fyrir fagurkera og hefur hlotið verðskuldaða athygli hér heima og erlendis.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.