Atvinna
Hlutastarf í verslun.
Við erum að leita að manneskju með brennandi áhuga
á tísku og hönnun fyrir verslun okkar við Laugaveg 7.
Viðkomandi þarf að geta veitt framúrskarandi þjónustu,
vera ábyrgðarfullur, jákvæður og sýna frumkvæði í starfi.
Möguleiki á að geta vaxið í starfi og
aðstoðað við að stækka merkið á alþjóðavísu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst!
Hæfniskröfur:
- Einungis umsækjendur eldri en 20 ára koma til greina.
- Reynsla af verslunarstörfum mikilvæg.
- Metnaður, jákvæðni og drifkraftur.
- Ábyrgð og stundvísi er mjög mikilvæg.
- Almenn tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum er mjög mikilvæg.
- Mikilvægt að sýna frumkvæði í starfi og hæfni í að leysa ýmis verkefni.
Fyrirspurnir eða umsóknir, með CV og meðmælum sendist á sales@hilduryeoman.com.
Hlökkum til að heyra frá þér!